24.1.2009 | 06:44
Af hverju nota ekki Íslenskir Þjóðarleiðtogar læknisþjónustu á Íslandi
Á hverju ári berjast margir Íslendingar við krabbamein og margsskonar veikindi..Það eiga ekki allir kost á því að leita sér lækninga á bestu stöðum erlendis eins og formenn stjórnarflokkana hér á Íslandi.
Hér er verið að skera niður miskunnarlaust í heilbrigðiskerfinu...Ég bara spyr...er hinn almenni borgari miklu minna virði heldur en stjórnmálaforingar......Við eigum öll okkar líf......og við eigum öll rétt á að lifa,meðan við drögum andann..Ekki rétt??
Ég óska þess innilega að Geir og Ingibjörg nái fullum bata af sínum meinum....en mig langar að spyrja,af hverju nota þau sér ekki þá meiriháttar góðu læknisþjónustu í okkar landi.
Og ég ætla að spyrja fyrir hönd íslensku þjóðarinnar..Hver borgar þessar læknismeðferðir í útlöndum??......Er það íslenska þjóðin sem borgar???
Ef svo er þá vona ég að allir á Íslandi sitji við sama borð.
Ég veit það að svona mál eru viðkæm að tala um..en eins og er statt fyrir íslensku þjóðinni verður allt að vera upp á borðinu.
Það er nóg komið af feluleikjum í þessu landi.
OG ÉG SPYR..BORGAR ÍSLENSKA HEILBRIGÐISKERFIÐ LÆKNISMEÐFERÐIR FYRIR GEIR HAARDE OG INGIBJÖRGU SÓLRÚNU GÍSLADÓTTIR Í ÚTLÖNDUM??????........SVAR ÓSKAST.
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Í sumum tilfellum geta sjúklingar ekki annað en leitað erlendis eftir þeirri þjónustu/læknismeðferð sem þeir þurfa. Ég tel víst að þannig sé í báðum þessum tilfellum sem þú vísar til þ.e. hjá þeim Ingibjörgu og Geir. Einungis tilviljun að þetta gerist á svipuðum tíma. Íslenskt heilbrigðiskerfi er gott og við eigum frábæra lækna, en vegna þess hve íslensk þjóð er fámenn, þá er viss sérfræðikunnátta ekki "til staðar- við haldið" hér og því þarf að senda sjúklinga til annarra landa. Það eru t.d. mörg tilfelli ár hvert þar sem nýfædd börn greinast með alvarlega hjartagalla og mörg þeirra fara í aðgerðir í Boston .... virkilega gott mál að eigum völ á því að njóta bestu læknisþjónustu sem er í boði hverju sinni, hvar sem hún er staðsett
Katrín Linda Óskarsdóttir, 24.1.2009 kl. 07:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.