16.4.2010 | 02:50
Tek ofan fyrir Páli fyrrverandi þjálfara KRinga í körfubolta
Þetta sagði hann í viðtali við MBL.is.um úrslitarimmuna sem er framundan í körfubolta karla.
,,Þetta verður hörkurimma og erfitt að spá um úrslit en ég vona að Snæfell taki rimmuna og verð að viðurkenna að ég held með dreifbýlisliðinu sem gamall Skagfirðingur. Ég vona að Ingi Þór taki liðið sitt alla leið og þá hefur Hlynur Bæringsson spilað frábærlega í allan vetur og ég held hann eigi allt gott skilið og gaman fyrir hann að vinna titil í ár víst við tókum þetta ekki, sagði Páll og ljóst að KR-ingar fá nýjan þjálfara fyrir næstu leiktíð.
Svona tala þjálfarar sem eru ekki tapsárir.Tek ofan fyrir honum!
En það verður ekki frá KRingum tekið að þeir áttu alveg ótrúlega innkomu í fjórða leikhluta,á móti Snæfellingum,þeir minnkuðu 20 stiga mun eftir 3 leikhluta í eitt stig,ef að ég fer rétt með.
Takk fyrir góða undanúrslitarimmu...Snæfell og KR.
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.